glænýtt blogg á landinu!

af hverju þarf ég alltaf að detta eða missa e-ð þegar ég sé fallegan karlmann til að reyna við? ég er nýkomin heim frá London. skrapp út í viku með söru og báru. svona ansi skemmtileg stelpuferð eins og margir vilja kalla það. það var mikið djammað og djúsað og verslað út fyrir öll velsæmismörk. en er það ekki akkúrat það sem við íslendingar gerum þegar við komumst loksins til útlanda?

ferðin byrjaði eki vel. ég var stoppuð á flugvellinum í London af tveimur fjallmyndarlegum kvenmönnum. alveg FJALLmyndarlegum! önnur þeirra talaði við mig á undarlegu máli sem ég taldi mig aldrei hafa heyrt áður.. þetta var alveg svakaleg breska. þær bentu mér að koma með sér e-ð á bakvið. shit hvað ég var skelkuð. eru þær að fara að gramsa í mínu allra heilagasta í von um að finna skynörvandi lyf? neinei, þær ætla bara aðeins að tala við mig. úff.. ég get ekki að því gert að mér finnst harla ólíklegt að þær þurfi að fara með mig í bakherbergi til að spyrja mig hvað ég sé með í vasanum. þær eru að fara að gramsa! tvær tröllskessur á stærð við pabba minn böbbluðu e-ð og bentu og veifuðu höndunum í áttina að mér. ég var gráti næst. vinkonur mínar horfnar í gegn um tollinn og tveir kvenkarlmenn eru að fara að misnota mig á heathrow flugvellinum í london. mér gat ekki liðið verr þegar allt í einu, algjörlega upp úr þurru, að önnur þeirra leggur höndina á öxl mér og vísar mér leiðina út. þær gáfust upp á stressaða íslendingnum sem kunni ekki cockney bresku. ég hleyp áfram, eldrauð í framan, skjálfandi og dofin í fótleggjunum og finn stelpurnar sem finnst þetta að sjálfsögðu alveg óborganlegt.

við komumst heilar á húfi á hótelherbergið til að henda af okkur farangrinum. stelpurnar enn flissandi yfir skelfingarsvipnum þegar fröken og frú borghildur tóku mig afsíðis til misnotkunar sem ekkert varð úr sökum tungumálamisskilnings.. eða ekki skilnings.

við létum mestu ferðaþreytuna aðeins líða úr okkur áður en við sklltum á okkur maskara og hlupum út í villta borgina. við byrjuðum á cheers barnum, drukkum nokkra bjóra þar. barþjónninn var annaðhvort suður amerískur eða austur evrópskur. ég hallast frekar að austur evrópu kostinum. hann virtist í fyrstu vera mjög indæll. sagði mér hversu fallegar við værum og spjallaði við okkur, hvaðan við værum og allt þetta venjulega. svo spurði hann bara svona eins og ekkert væri sjálfsagðara: "You gullz shed come to moy ouse after moy sheft and shag me and moy friend." við héldum nú ekki. hreyttum út úr okkur óyrðum við drenginn og yfirgáfum cheers. þvílíkur dóni. en þegar leið á kvöldið vorum við farnar að leika hann og gera grín að þessu.

við héldum áfram og fundum þarna einhvern pöbb sem ég man ekkert nafnið á. fórum inn.. ég blindaðist af fegurð þessa manns! hann innihélt greinilega indverskt blóð og var alveg gífurlega myndarlegur! ég glápti á hann með galopinn munninn og hálf rangeyg þegar honum er skyndilega litið á mig! helvítis! af hverju get ég ekki bara alltaf verið fabulous?! hann sá mig greinilega og það eina sem ég gerði var að byrja að roðna og svitna! ..jæja, þá var það úr sögunni. ég hélt bara áfram mínu striki á eftir píunum en þurfti aðeins að vera með sýndarmennsku. enda komin ágætlega í glas á þessum tímapunkti. ég dansaði eins og ég væri í britney spears myndbandi (hélt ég) og blés reykhringi með stút á vörunum og var bara ógeðslega töff (fannst mér). ég var eins og módel nema bara skemmtilegri! vá hvað margir strákar eiga örugglega eftir að reyna við mig í kvöld! (stundum þegar maður er drukkinn...geez). við stelpurnar skiptumst á að fara á barinn til að kaupa drykki. við gerum það yfirleitt þegar við förum að djamma en þá ákveður sú sem fer barferðina hvaða drykkur verður í boði það skiptið. við vorum allar búnar að kaupa nokkur tequila skot hver. ég var búin að kaupa blauta geirvörtu (mér finnst þetta alltaf alveg svakalega dónalegt nafn á skoti). svo voru þarna nokkrir kokteilar og að sjálfsögðu bjór. ég fór á barinn og bað um irish carbomb en þurfti að lýsa drykknum fyrir barþjóninum. það tók drykklangan tíma. og þá meina ég drykk sem tekur lengri tíma að drekka en irish carbomb. en á endanum tókst það. fyrir ykkur sem hafa ekki smakkað irish carbomb, skellið ykkur þá á celtic og pantið eina írska. whiskey í botninn, guinnes og svo skella þeir baily's staupi ofan í bjórinn. drekkið þetta nú á innan við 3 sekúndum!

ég hata greinaskilin á þessu bloggi.. jæja, þeir sem hafa prófað þennan drykk vita kannski hversu alvarleg áhrif hann hefur á líkamann. taugakerfið fer að dingla inni í þér og dómgreindarhluti heilans hættir að fá súrefni. en mikið svakalega verður gaman. svona ef maður hefur ekki verið búinn að drekka mjög mikið áður en bílasprengjan er innbyrgð.

málið er það, að ég VAR búin að drekka mikið. þessvegna varð ég alveg gegnsósa eftir þetta. ég ákvað því að rölta yfir til indverjans míns og leiðrétta þann misskilning að ég sé með alvarlegan heilaskaða. ég setti varasalva á mig, gerði toppinn minn aðeins flegnari, fékk mér tyggjó, kveikti mér í sígó og setti stút á varirnar. ég labbaði ógeðslega sexý að barnum, tróð mér við hliðina á honum og snéri að honum. ég ætlaði sko að heilla hann upp úr skónum.

"hæ ar jú from indía? bíkos, jú nó, æ lov indían menn. ðei ar verrí kjútt. hev jú sín Lost?"

hann leit á mig og vá hvað hann var glaður að sjá mig! hann brosti út að eyrum og hló að öllum bröndurunum mínum, jafnvel þó svo að ég myndi ekki endinn á þeim af því ég var svo full og sagði þá kannski svolítið úr samhengi. hann var að djamma með vinum sínum og fór að kynna mig fyrir þeim. þeir voru líka glaðir að sjá mig... hmm..? mér fór að líða asnalega og leit niður.. crap. ég hafði togað toppinn allt of langt niður þegar ég ætlaði að vera sexý.. nákvæmlega gott fólk! ég var á fokkíng brjóstunum!!

ég togaði toppinn upp og smeygði mér í burtu og dró stelpurnar með mér inn á klósett. þannig fór það..

 

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú ert snillingur :D. fyndiðhvernig þú lýsir þessu öllu :)

jindro (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband